Animalia ehf. hefur verið í sambandi við frændur okkar í Noregi og Danmörku og langar að bjóða upp á tvö námskeið á árinu.

Fyrra námskeiðið er námskeið á vegum Jan F. Andersen í Noregi í skurðlækningum smádýra (3-d Bløtvevskirurgi hund og kat sjá inn á  http://www.jfa-as.no/ velja kurskatalog nedst og finna síðu nr 9). Jan er tilbúinn að bjóða upp á aukanámskeið fyrir 10 íslenskra dýralækna auk 10 norska dýralækna af biðlista á 14 000 Nkr, innifalið 3 daga námskeið, flug, ferðir til og frá Gardemoen, og uppihald allan tímann  (með fyrirvara um breytingar á flugfargjöldum og öskudreyfingu).
Ekki er komin nákvæm dagsetning en námskeiðið myndi vera snemma í haust og skýrist á næstu vikum. Námskeiðin hjá Jan F. Andersen eru haldin í þeirra eigin námskeiðssetri, sem er vel útbúið tækum bæði til kennsku á sjálfum aðgerðunum og undir fyrirlestra. Gist er á hóteli í nágreninu. Námskeiðin eru mjög vinsæl meðal dýralækna í Noregi og Svíþjóð, og eru kennararnir tveir mjög færir norskir skurðlæknar. Kenndar eru ýmsar aðgerðir sem nýtast vel öllum sem hafa með hunda og ketti að gera. Á námskeiðinu er öllum gefið færi á að reyna allar aðgerðirnar. Ekki er gert ráð fyrir að dýralæknar á námskeiðinu sé eingöngu að sinna smádýrum. Frekari upplýsingar eru að finna í kurskataloget á heimasíðunni hér að framan.
Áhugasamir dýralæknar skrái sig á animalia.ehf@gmail.com fyrir 31. maí (max 10 dýralæknar)

Seinna námskeiðið verður 2. og 3. október 2010 á Íslandi og fjallar um nagdýr með áherslu á heilbrigðisskoðun og sjúkdóma, ásamt fóðrun og fyrirbyggjandi aðgerðum.  Aðaláherslan verður á kanínur og nagrísi. Fyrirlesari námskeiðsins verður Mette Lybek Rueløkke, „Senior Dyrlæge“ við Konunglega Dýralæknaháskólann í Danmörku, sérfræðingur í sjúkdómum á hinum svokölluðu „exotic pets“, en þar undir heyra nagdýr ásamt fuglum og fleiri furðudýrum.
Nákvæm staðsetning er ekki komin en námskeiðið verður haldið á suðvestur horninu.
Námskeiðsgjald er 75 000kr, innifalið námskeiðsgögn og veitingar á meðan námskeiðinu stendur, og svefnpokapláss fyrir áhugsama þátttakendur.
Áhugsamir dýralæknar skrái sig á animalia.ehf@gmail.com fyrir 31. maí (lágmark 12 þátttakendur)
Animalia ehf.

DNVs etterutdanningskurs

DDD kursusoversigt

Jan F. Andersen

BEVA

IVIS on-line

Veterinary Chiropractic

OQUENDO CENTER PROGRAMMING Las Vegas

fimmtudagur 9 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Samráðsþing MAST 2010 - Framkvæmd, niðurstöður og eftirfylgni...
18.06.10
Nordic–Baltic seminar on Risk Based Animal Health Surveillance and Contingency Planning 1-3...
26.04.10
Animalia stendur fyrir námskeiðum. Sjá undir Ráðstefnur og...

Atvinnuauglýsingar